Haustþing KíO og HS Orku Haustþing Kvenna í orkumálum og HS Orku verður haldið 22. september. Flutt verða 30 örerindi um þau margvíslegu viðfangsefni sem konur í geiranum fást við á hverjum degi. Þær sem eru áhugasamar um að halda slíkt örerindi eru beðnar að senda tölvupóst á konuriorkumalum@gmail.com með nafni og stuttri lýsingu á því sem erindið á að fjalla um. Þátttaka í viðburðinum er takmörkuð og skráning er því nauðsynleg á sama netfang, óháð því hvort óskað sé eftir því að halda örerindi eða ekki. Dagskrá föstudagsins 22. september 2017 12.45 Lagt af stað úr Reykjavík í rútum 13:30 Lending hjá HS Orku 14:00 Fyrstu 15 örerindi 15:00 Netagerð og hlé 15:15 Næstu 15 örerindi 16:15 Kynning HS Orku 16:30 Skoðunarferð 17:00 Kokteill og pinnamatur í boði HS Orku 19:00 Keyrt af stað í bæinn