Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026

Nýsköpunarverðlaun Samorku verða afhent í sjötta sinn kl. 15 fimmtudaginn 19. nóvember í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur.

Nýsköpun hefur alltaf verið samofin starfsemi orku- og veitugeirans og líkt og áður kallar geirinn á skapandi lausnir til að svara áskorunum nútímans. Loftslagsbreytingar, orkuskipti og aukið álag á innviði kalla á nýjar lausnir og nýja hugsun. Nýsköpun gerir okkur kleift að nýta auðlindir betur, auka skilvirkni og sjálfvirkni og byggja upp þau traustu og sjálfbæru orku- og veitukerfi sem samfélagið þarf til framtíðar. Með Nýsköpunarverðlaunum Samorku viljum við vekja athygli á því öfluga nýsköpunarstarfi sem unnið er í geiranum og heiðra þá sem skara fram úr.

Dagskrá

  • Ávarp: Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku
  • Fulltrúi dómnefndar tekur til máls
  • Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhendir Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026
  • Myndband um starfsemi verðlaunahafans
  • Boðið verður upp á léttar veitingar í lok viðburðar

Skráning fer fram hér fyrir neðan. Við hvetjum gesti til að skrá sig til að tryggja sér sæti og hjálpa okkur að draga úr matarsóun.