Samorkuþing 2025

Samorkuþing verður haldið í Hofi á Akureyri dagana 22. – 23. maí 2025.

Samorkuþing er stærsta fagráðstefna landsins í orku- og veitutengdri starfsemi og er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri. Vegleg vöru- og þjónustusýning er hluti af þinginu og mun sala bása fara af stað í haust. Hátíðarkvöldverður og skemmtun fer fram í Íþróttahúsinu.

Um 500 manns tóku þátt í síðasta þingi árið 2022 og gert er ráð fyrir álíka aðsókn.

Samorka hefur þegar tekið frá um 250 hótelherbergi á Akureyri og mun leitast við að taka fleiri frá. Hér eru frekari upplýsingar um hvernig best er að bóka og verða þessar upplýsingar uppfærðar eftir því sem við á:

Berjaya hótel (áður Icelandair hótel): Senda tölvupóst á sales@icehotels.is og vísa í bókunarnúmer 2228195. Samorka á allt hótelið frátekið eða 99 herbergi. Best er að fá upplýsingar um verð hjá hótelinu sjálfu.

Hótel KEA: Senda tölvupóst á sales@keahotels.is og vísa í bókunarnúmer 56001202. Samorka á 50 herbergi frátekin af mismunandi stærðum og á óskalista um fleiri.

Single standard: 25.000 með morgunmat
Standard: 35.000 með morgunmat
Standard Twin: 35.000 með morgunmat
Plus: 35.000 með morgunmat
Superior: 42.000 með morgunmat
Triple: 45.000 með morgunmat
Deluxe: 45.000 með morgunmat

Hótel Akureyri: Senda tölvupóst á hotelakureyri@hotelakureyri.is og taka fram að bókunin sé vegna Samorkuþings 2025. Samorka á frátekin 25 herbergi á Skjaldborg í innbænum og í Dynheimum og möguleiki er á að bóka fleiri herbergi. Hótel Akureyri er að byggja við og nýi hlutinn verður tekinn í notkun í maí 2025. Áhugasamir geta haft samband og tekið frá herbergi þar gegn því að greiða 20% staðfestingargjald.

Skjaldborg:
– Standard double 19.000 með morgunmat
– Ocean view double 22.000 með morgunmat
– Superior ocean view double 26.000 með morgumat

Dynheimar:
– Single: 17.000 með morgunmat
– Double: 22.000 með morgunmat

Hótel Kjarnalundur: Senda tölvupóst á info@kjarnalundur.is og tilgreina „Samorkuþing 2025“ í bókun. Samorka á frátekin 28 tveggja manna herbergi og 10 einstaklingsherbergi, öll með morgunmat inniföldum.

Einstaklingsherbergi: 24.500 með morgunmat
Tveggja manna herbergi: 32.000 með morgunmat

Hótel Norðurland: Senda tölvupóst á booking@hotel-nordurland.is og taka fram að bókunin sé vegna Samorku/Samorkuþings. Samorka á frátekin 15 tveggja manna herbergi og fimm einstaklings, en á biðlista eftir fleiri lausum herbergjum svo það gæti bæst við.

Sæluhús: Hafa samband á saeluhus@saeluhus.is og vísa í bókunarnúmer 50471897. Samorka á frátekin 10 hús með heitum potti, 10 íbúðir án heita potts og þrjú einbýlishús sem taka allt að sjö manns. Íbúðirnar kosta 25.900 á nótt.