Betri heimur byrjar heima: Landsvirkjun og innra kolefnisverð

Fundaröðin Atvinnulíf og umhverfi heldur áfram fimmtudaginn 23. janúar í Húsi atvinnulífsins.

Boðið verður upp á fjölmarga snarpa fundi til vors þar sem sagðar verða hvetjandi sögur af umhverfismálum fjölbreyttra fyrirtækja. Betri heimur byrjar heima er yfirskrift fundaraðarinnar 2019-2020.

Á næsta fundi verður fjallað um innra kolefnisverð á tímum loftslagsbreytinga.

Jóna Bjarnadóttir, forstöðumaður umhverfis og auðlinda hjá Landsvirkjun og Daði Sverrisson, verkefnastjóri innra kolefnisverðs Landsvirkjunar, brjóta málið til mergjar.

Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, í salnum Hyl á 1. hæð, kl. 8.30-9.00. Létt kaffispjall og umræður að loknum fundi. Þá verður fundinum einnig streymt í Sjónvarpi atvinnulífsins á www.sa.is og á Facebook-síðu samtakanna.