Aðalfundur Samorku verður haldinn í Norðurljósum, Hörpu, þann 15. mars 2022. Fundurinn hefst kl. 10.30.
Stefnt er að aðalfundi þar sem gestir mæta í eigin persónu. Mæting á staðinn og þá eftir atvikum fjöldi þeirra sem getur mætt, ræðst af þeim reglum sem þá munu gilda um samkomutakmarkanir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á aðalfundinum með því að skrá ykkur hér fyrir neðan eigi síðar en mánudaginn 14. mars.
Dagskrá:
10:00 Skráning
10:30 Aðalfundarstörf
Setning: Berglind Rán Ólafsdóttir, formaður stjórnar Samorku
Dagskrá aðalfundar skv. lögum Samorku :
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur ásamt skýrslu endurskoðanda
- Fjárhagsáætlun
- Tillögur um lagabreytingar (engar)
- Tillögur kjörnefndar
- Kjör stjórnar, stjórnarformanns og endurskoðanda
- Kjör í kjörnefnd
- Önnur mál
– Tillaga að leiðbeiningum fyrir kjörnefnd
– Tillaga að ályktun aðalfundar
13.00 Opinn ársfundur: Græn framtíð – hvað þarf til?
Ársfundurinn verður einnig í beinni útsendingu á heimasíðu Samorku.