Aðalfundur 2023

Aðalfundur Samorku 2023 var haldinn þann 15. mars á Grand hótel Reykjavík.

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, var kjörin stjórnarformaður Samorku til næstu tveggja ára. Þrjú ný taka sæti í stjórn Samorku; Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála, hjá HS Orku, Páll Erland, forstjóri HS Veitna, og Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar.

Í stjórn Samorku sitja jafnframt áfram þau Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum, Sigurður Þór Haraldsson, veitustjóri Selfossveitna, og Steinn Leó Sigurðsson, sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs hjá Skagafjarðarveitum.

Þá voru þau Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku, og Harpa Pétursdóttir, stjórnandi málefna haghafa og stjórnsýslu hjá Orku náttúrunnar, kjörin varamenn í fyrsta sinn. Fyrir eru Aðalsteinn Þórhallsson, Jón Trausti Kárason, forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, varamenn í stjórn.

Stjórn Samorku er því þannig skipuð að loknum aðalfundi 2023:

Aðalmenn:

Kristín Linda Árnadóttir, formaður stjórnar

Björk Þórarinsdóttir, HS Orku

Páll Erland, HS Veitum

Magnús Kristjánsson, Orkusölunni

Steinn Leó Sveinsson, Skagafjarðarveitum

Sigurður Þór Haraldsson, Selfossveitum

Hrefna Hallgrímsdóttir, Veitum

Varamenn:

Aðalsteinn Þórhallsson, HEF

Eyþór Björnsson, Norðurorka

Harpa Pétursdóttir, Orka náttúrunnar

Jón Trausti Kárason, Veitum

Hörður Arnarson, Landsvirkjun

Í ályktun aðalfundarins er meðal annars kallað eftir endurskoðun á umgjörð rammaáætlunar og að tryggt sé að laga- og regluumgjörð við stjórnsýslu orku- og veitutengdrda verkefna skili virkum árangri, taki hóflegan tíma og sé ekki of kostnaðarsöm.

Ályktun aðalfundar 2023

Ársskýrsla Samorku 2022 er rafræn og má finna á https://arsskyrsla2022.samorka.is/