Samorka býður til námskeiðs um samkeppnisrétt miðvikudaginn 14. júní frá kl. 14 – 16.
Á námskeiðinu er farið sérstaklega yfir samkeppnisréttaryfirlýsingu Samorku og mikilvægar samkeppnisréttareglur sem hafa þýðingu fyrir starf atvinnugreinasamtaka. Námskeiðið er hugsað fyrir öll sem taka þátt í hvers konar starfi Samorku og nýtist öllum sem starfa í samkeppnisréttarumhverfi.
Jóna Björk Helgadóttir, lögmaður og sérfræðingur í samkeppnisrétti, kennir námskeiðið.
Námskeiðið verður haldið hjá Samorku í Húsi atvinnulífsins í fundarsalnum Hyl. Einnig verður boðið upp á að sitja það í gegnum Teams. Vinsamlegast skráið ykkur og tilgreinið með hvaða hætti þið hyggist sækja námskeiðið.