Desemberfundur Samorku 2026 Desemberfundur Samorku verður haldinn fimmtudaginn 3. desember á Parliament Hótel í Reykjavík. Formleg dagskrá stendur frá kl. 15:00–17:00 og að henni lokinni verður jólahlaðborð. Á fundinum verður sjónum beint að nokkrum af stærstu viðfangsefnum orku- og veitugeirans um þessar mundir. Fjallað verður um áherslur og samskiptastefnu Samorku, rammaáætlun og þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir, auk þess sem orka, veitur og efnahagsmál verða rædd í sófaspjalli. Dagskrá Ávarp stjórnarformannsSólrún Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Samorku, opnar fundinn og býður gesti velkomna. Sameiginleg rödd SamorkuFinnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, fjallar um samskiptastefnu og áherslur samtakanna. Rammaáætlun í reynd: áskoranir og álitamálKatrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Samorku, fjallar um rammaáætlun og þær áskoranir og álitamál sem blasa við í framkvæmd. Hlé – Léttar veitingar Orkan, veiturnar og efnahagurinnFundinum lýkur með sófaspjalli með Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Degi B. Eggertssyni, alþingismanni og 1. varaformanni fjárlaganefndar. Að formlegri dagskrá lokinni tekur jólahlaðborð við í Sjálfstæðissalnum. Þátttökugjald í jólahlaðborðið er 8.900 kr. án drykkja. Skráning Athugið að Desemberfundurinn er lokaður fundur ætlaður starfsfólki aðildarfyrirtækja Samorku, einkum þeim sem taka virkan þátt í ráð- og hópastarfi samtakanna. Nafn Netfang Fyrirtæki Ég mæti á Desemberfund Samorku Ég mæti á jólahlaðborð og skemmtiatriði (verð 8.900) Ég tek með gest/maka á jólaskemmtun (verð 8.900) Δ