Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavik Grand og stendur yfir frá kl. 13:00 – 15:15.Húsið opnar kl. 12:30. Skráning fer fram hér. OpnunarávarpBjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins PallborðsumræðurFrá Íslandi til Brussel – sérstaða, hagsmunir og áhrif Afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsinsÞrjú fyrirtæki sem skara fram úr í tilnefningum verða heiðruð fyrir góðan árangur í umhverfismálum og Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 verðlaunað á deginum. Frestur til að tilnefna til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins er liðinn. Stutt kaffihlé Málstofur – velja þarf málstofu við skráningu 1. Sérstaða Íslands í ETS-kerfinu ETS-kerfið er hluti af sameiginlegu evrópsku regluverki á sviði loftslagsmála. Á málstofunni verður fjallað um mikilvægi þess að áhrif og framkvæmd hins sameiginlega regluverks taki mið af íslenskum aðstæðum á borð við landfræðilega legu, fámenni og mikilvægi flugs og sjóflutninga.Sjónum verður beint að þeirri vinnu sem hefur farið fram við að koma sérstöðu Íslands á framfæri fyrir flug og sjóflutninga og tryggja að framkvæmd kerfisins taki mið af aðstæðum hér á landi og samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs. Jafnframt verður fjallað um mikilvægi áframhaldandi hagsmunagæslu og eftirfylgni, bæði við þróun regluverksins og framkvæmd þess hér á landi. 2. PPWR – innleiðing umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi Ný reglugerð ESB um umbúðir og umbúðaúrgang (PPWR) mun hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf í Evrópu. En eru áhrifin þau sömu á Íslandi?Á málstofunni verður fjallað um áhrif PPWR á íslenskt atvinnulíf, meðal annars smásölu, innflutning og útflutning, með sérstakri áherslu á þær áskoranir sem kunna að felast í sérstöðu Íslands. Einnig verður rætt hvernig íslenskum hagsmunum og sjónarmiðum hefur verið komið á framfæri við mótun regluverksins í Evrópu. 3. Íslensk sérstaða í orkumálum Aðgengi að grænni og samkeppnishæfri orku hefur lengi verið ein af sérstöðum Íslands og skapað grundvöll fyrir orkusækinn iðnað. Nú eru miklar breytingar að verða á orku- og iðnaðarstefnu Evrópu sem geta haft áhrif á samkeppnisstöðu Íslands.Fjallað verður um þessa þróun og snert meðal annars á CBAM, breyttu orkuregluverki og aðgerðum ESB til að styrkja evrópskan iðnað. Hvaða áhrif hefur þróunin á íslenskt atvinnulíf? Verður íslensk græn orka verðmætari og hvernig getur Ísland nýtt sérstöðu sína í breyttu evrópsku landslagi? Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og tengslamyndun. Endanleg dagskrá verður auglýst innan tíðar!Dagurinn sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ.