Hvað er svona snjallt við snjallmæla?

Hvað er eiginlega svona snjallt við snjallmæla og hvað breytist þegar hefðbundnum mælum er skipt út fyrir snjalla?

Í nýjasta þætti Lífæða landsins ræðum við snjallmæla á mannamáli við Ingu Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum, og Valtý Guðmundsson, deildarstjóra mælaumsýslu hjá HS Veitum.

Við förum yfir hvað snjallmælar eru og hvernig þeir virka, hvaða ávinningur felst í þeim fyrir heimili, fyrirtæki og veiturnar sjálfar og hvernig innleiðing þeirra gengur fyrir sig. Við ræðum líka hvernig snjallmælar geta hjálpað til við að greina bilanir og óeðlilega notkun, stuðlað að betri nýtingu auðlinda og hvaða möguleikar opnast þegar við höfum betri upplýsingar um notkun á rafmagni og heitu og köldu vatni. Og auðvitað, síðast en ekki síst: Hvað vita snjallmælarnir í raun um okkur?