Fagþing hita-, vatns- og fráveitna 2023 Fagþing hita-, vatns- og fráveitna verður haldið á Hótel Selfossi dagana 4.-5. maí. Framkvæmda- og tæknidagurinn verður haldinn eftir hádegi miðvikudaginn 3. maí. Dagurinn er sérstaklega ætlaður fagfólki í framkvæmdum. Vöru- og þjónustusýning verður til staðar eins og áður. Við hvetjum ykkur til að tryggja ykkur herbergi á Hótel Selfossi sem fyrst, þar hafa verið tekin frá herbergi í nafni Samorku. Síminn er 480-2500.Gisting í einstaklingsherbergi með morgunverði: 22.000 kr. (aukanótt á 12.500)Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði: 28.000 kr. (aukanótt á 16.000) Heimasíða Fagþingsins er opin þar sem dagskrá og nánari upplýsingar er að finna. Nafn Fyrirtæki Netfang (required) Vinsamlegast hakið í þá liði sem þið hyggist taka þátt í: Ég mæti á Fagþing 2023 4.-5. maí - 49.900 kr. Ég mæti á Framkvæmda- og tæknidaginn 3. maí (ætlað starfsfólki veitu- og orkufyrirtækja) – 12.900 kr. Ég mæti á hátíðarkvöldverð og skemmtun 4. maí – 15.900 kr. Ég vil grænkeramatseðil. Hátíðarkvöldverður og skemmtun fyrir maka/gest – 15.900 kr. Maki/gestur vill grænkeramatseðil. Ég mæti í skemmti- og vísindaferð (skráning nauðsynleg til að áætla sæti í rútu). Δ