Blágrænar ofanvatnslausnir – hádegisfyrirlestur Á fyrsta örfyrirlestri VAFRÍ 2017 verður minning Sveins Torfa Þórólfssonar prófessors við NTNU í Noregi heiðruð, en þar verður fjallað um blágrænar ofanvatnslausnir, sem var eitt hans helsta áhugamál og fagsvið síðustu áratugina. Tími: Miðvikudaginn 15. febrúar 2017, kl. 12:30-14:00 Staðsetning: Fundarsalur Verkís, neðstu hæð við inngang, Ofanleiti 2, Reykjavík. Dagskrá: 12:30 Setning – Hrund Ólöf Andradóttir, formaður VAFRÍ 12:35 Æskuminningar Sveins Torfa úr Grindavík – Hilmar Sigurðsson, verkfræðingur. 12:40 Leiðbeiningar um blágrænar ofanvatnslausnir – Halldóra Hreggviðsdóttir, Alta ehf. 13:00 Áskoranir við meðhöndlun ofanvatns vegna þéttingar byggðar í röskuðu landi: Rammaskipulag Elliðaárvogs við Ártúnshöfða – Sigurður Grétar Sigmarsson, Verkís. 13:20 Umræður – „Horft fram í veginn“ 13:45 Æskuminningar Sveins Torfa frá Skagaströnd – Ingólfur Hrólfsson, verkfræðingur. 13:50 Niðurlag – Íris Þórarinsdóttir, gjaldkeri VAFRÍ. Fundarstjóri: Íris Þórarinsdóttir, tæknistjóri fráveitna, Veitum. Skráning á fyrirlesturinn fer fram hér.