Aðventufundur JHFÍ Aðventufundur Jarðhitafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 29. nóvember kl. 14-16 í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn ber yfirskriftina Frumkvöðlar í jarðhita: Baldur Líndal 100 ára. Á fundinum verður frumkvöðlahugsun Baldurs heiðruð með umfjöllun um mikilvægi nýsköpunar í jarðhita og framsögum frá frumkvöðlum dagsins í dag og framtíðarinnar. Dagskrá: Baldur Líndal: Aldarafmæli – Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda hjá HS Orku Efnahagslegt mikilvægi fjölnýtingar – Sölvi Blöndal, hagfræðingur hjá Gamma Mikilvægi nýsköpunar – Hildigunnur Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Þróunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur Frumkvöðlar í jarðhita: Climeon – Gabriella Skog, Varmaorku Why Use Geothermal to Grow Micro Algae? – Kristinn Hafliðason, framkvæmdastjóri Algeainnovation Nýting jarðvarmakísils sem hráefni í kísiljárnframleiðslu – Sunna Ó. Wallewik Framtíð fjölnýtingar – Bjarni Pálsson, deildarstjóri Jarðvarmadeildar hjá Landsvirkjun Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, Samorku