Alþjóðlegt samstarf

 

Eurelectric

Eurelectric eru Evrópusamtök rafiðnaðarins, en jafnframt eiga flutningsfyrirtæki með sér sérstök samtök, ENTSO-E.
Aðalhlutverk Eurelectric er að móta sameiginlega stefnu raforkugeirans í Evrópu og hafa áhrif á stefnumótun ESB á því sviði. Aðild Samorku að Eurelectric er kostuð sérstaklega af fimm aðildarfyrirtækjum samtakanna – HS Orku, Landsvirkjun, Norðurorku, Orkuveitu Reykjavíkur og RARIK.
Samorka á fulltrúa í nokkrum nefndum og hópum á vegum Eurelectric.

EurEau

Samorka er aðili að evrópsku vatns- og fráveitusamtökunum EurEau. Aðalhlutverk samtakanna er að móta sameiginlega stefnu fyrir vatns- og fráveitur í Evrópu og að standa vörð um vatnsból, aðgengi fólks að góðu drykkjarvatni og að skila vatninu á ný í hringrásina. Samtökin fagna 50 ára afmæli á árinu 2025.

Nordenergi

Raforkusamtökin á Norðurlöndum hafa með sér formlegt samstarf undir merkjum Nordenergi. Aðildarsamtökin skiptast á um að reka samtökin, að Samorku undanskilinni. Framkvæmdastjóra Samorku er þó boðið að taka þátt í ársfundum og framkvæmdastjórafundum Nordenergi. Allnokkur starfsemi er á vegum Nordenergi þar sem auk ársfundar hittast framkvæmdastjórar aðildarfélaganna tvisvar til þrisvar á ári.

Samorka tekur nú virkan þátt í starfi Nordenergi. Birtist það meðal annars með skrifstofuaðstöðu Samorku hjá Nordenergi í Brussel. Auk þess sem starfsmaður Samorku tók á árinu 2024 þátt í starfshópi Nordenergi um heildsölumarkað raforku.

Starfsmaður Samorku í Brussel mun taka virkan þátt ásamt framkvæmdastjóra í starfi samtakanna, bæði á skrifstofu þeirra í Brussel og á öðrum vettvangi.

WindEurope

Samorka er aðili að WindEurope, regnhlífarsamtökum ólíkra aðila á sviði vindorkunýtingu með yfir 400 meðlimi. Aðilar eru af fjölbreyttum toga frá öllum sviðum vindorkuiðnaðar m.a. vindmylluframleiðendur, framleiðendur á öðrum tengdum búnaði, hönnunar- og tæknifyrirtæki og loks fyrirtæki á sviði vindorkunýtingar og raforkuframleiðslu. Að auki eru í samtökunum landssamtök vindorkufyrirtækja í einstökum ríkjum, rannsókna- og fjármálastofnanir. WindEurope reka skrifstofur í Brussel og þar sem fram fer margs konar starfsemi og samtökin eru vettvangur faglegs samstarfs, stefnumótum og opinber málflutningur fyrir vindorkufyrirtæki í Evrópu.

Evrópska jarðvarmaráðið (European Geothermal Energy Council, EGEC)

EGEC voru stofnuð árið 1998 sem málsvari jarðvarmageirans í Evrópu bæði innan Evrópu og á alþjóðavísu. Í starfi þeirra er lögð áhersla á að hafa áhrif á opinbera stefnumótun til eflingar jarðvarmanýtingu og rannsókna auk þess að vinna að bættum rekstrarskilyrðum fyrirtækja á sviði jarðvarma. Félagar að samtökunum eru alls 120 frá 28 löndum og spanna vítt svið allt frá fyrirtækjum í jarðvarmavinnslu yfir í landssamtök Evrópulanda á sviði jarðvarma.  Skrifstofur EGEC eru í Brussel Samorku.

Stjórn Samorku fundaði með framkvæmdastjóra EGEC á ferð sinni til Brussel í nóvember 2024. Mikil tækifæri eru fyrir íslensk fyrirtæki vegna vaxandi áhuga á jarðvarmanýtingu í Evrópu og munu EGEC og aðild Samorku að samtökunum vera mikilvægur vettvangur til að þróa áfram samstarf og tækifæri. Aðild að samtökunum mun einnig vera mikilvæg þegar kemur að þróun aðgerðaráætlunar og mögulega evrópskrar löggjafar um jarðvarmanýtingu.

Samstarf við REN

Dreifiveiturnar eru í samstarfi við REN AS í Noregi um aðgang að leiðbeiningum og hugbúnaði dreifiveitum raforku og Landsneti. Um er að ræða staðlaðar leiðbeiningar er varða hönnun, byggingu, viðhald og rekstur dreifi- og flutningskerfa. REN AS er í eigu yfir 60 norskra flutnings- og dreififyrirtækja og eru REN leiðbeiningarnar uppfærðar reglulega í samræmi við viðurkennda staðla og bestu mögulegu starfsvenjur.

Samstarf við KraftCert

Aðildarfyrirtæki Samorku flokkast undir mikilvæga innviði sem samfélagið allt reiðir sig á. Því er áríðandi að innan þeirra sé hugað vel að netöryggi svo hægt sé að verjast mögulegum tölvuárásum á orkukerfi landsins.

Haustið 2021 gerðu aðildarfyrirtæki Samorku samstarfssamning við KraftCert í Noregi sem er í eigu stærstu orku- og veitufyrirtækjanna þar. Með samningnum fá fyrirtækin aðgang að miklu magni af upplýsingum og tengslanet sem er mjög mikilvægt þegar kemur að netárásum og viðbrögðum við þeim.  Samstarfið hefur gengið mjög vel og KraftCert m.a. haldið kynningar og námskeið á Íslandi auk þess að taka þátt í skipulagningu netöryggisæfinga sem aðildarfyrirtæki Samorku og NSR stóðu að.

Norrænt samstarf vatns- og fráveitna

Samorka tekur virkan þátt í norrænu samstarfi vatns- og fráveitna. Í samstarfi við önnur samtök vatns- og fráveitna á norðurlöndunum (NORDIWA) er árlega skipulögð norræn ráðstefna, þar sem þemað er vatnsveitur annað árið og fráveitur hið næsta. Í ár var umræðuefnið málefni vatnsveitna og helstu sérfræðingar Norðurlandanna og Evrópu hittust í Kaupmannahöfn í byrjun september.

Samorka tók virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd ráðstefnunnar. Nokkur íslensk erindi voru í dagskrá ráðstefnunnar, þar á meðal erindi Páls Erland á opnunarmálstofu ráðstefnunnar. Páll fjallaði um þær áskoranir sem felast í því að reka vatns- og hitaveitu á svæði með virku eldgosi.

Fulltrúi Samorku í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar var Sverrir Guðmundsson frá Veitum.

Ný fráveitutilskipun ESB var ofarlega á döfinni á ráðstefnunni þar sem vinna við tilskipunina var á lokametrunum þegar ráðstefnan var haldin. Tilskipunin var samþykkt á af ESB í byrjun mars 2024 en heildaráhrif hennar á Ísland verða þó ekki ljós fyrr en samningaviðræðum á milli ESA og ESB um innleiðingu hennar lýkur.

Samstarf við KÍO

Samorka er einn styrktaraðila félagsins Konur í orkumálum. Hlutverk KÍO er að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengsl þeirra og auka áhrif innan orku- og veitugeirans.