Menntadagur atvinnulífsins 2019 Menntadagur atvinnulífsins verður haldinn fimmtudaginn 14. febrúar í Hörpu kl. 8.30 -12.00. Þema dagsins að þessu sinni er læsi og boðið verður upp á málstofur um kennslustofu 21. aldarinnar og stöðu stráka í lífi og starfi. Skráðu þig strax í dag ef þú vilt tryggja þér sæti! Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. Menntadagur atvinnulífsins er nú haldinn í sjötta sinn. DAGSKRÁ 8.30 Velkomin Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnnulífsins Ávarp Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands Læsi til framtíðar – staða, ástæður og möguleikar Hermundur Sigmundsson, prófessor við Háskólann í Þrándheimi í Noregi og HR Stiklað á stóru Að skilja nútímann Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi og hugbúnaðarverkfræðingur Fjármálalæsi Ómar Örn Magnússon, kennari og verkefnastjóri við Hagaskóla Menningarlæsi: Ætlarðu í alvörunni að kyssa mig þrisvar? Margrét Lára Friðriksdóttir, mannauðsstjóri Össurar Menntaverðlaun atvinnulífsins 2019 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhendir verðlaunin. Fundarstjóri er Signý Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður fjárstýringar hjá Landsvirkjun. 10.00 Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi 10.30 Málstofur A) Kennslustofa 21. aldarinnar Verkefnamiðuð kennsla í skólastofu framtíðarinnar Hildur Ingvarsdóttir, skólastjóri nýja tölvu- og viðskiptaskólans Tími, rúm og flæði – Nálgun NÚ á kennslu á unglingadeildarstigi Kristján Ómar Björnsson og Gísli Rúnar Guðmundsson, stofnendur NÚ, nýs grunnskóla í Hafnarfirði Áskoranir í fræðslumálum hjá annasömu þekkingarfyrirtæki Ingunn Ólafsdóttir, mannauðsstjóri Eflu. Umræður Skúli Gunnsteinsson, skólastjóri nýja tölvu- og viðskiptaskólans stýrir málstofunni. B) Staða stráka í lífi og starfi Hvað gera Norðmenn? Gina Lund, framkvæmdastjóri Hæfnistofnunar Noregs (Kompetanse Norge). Strákarnir okkar Margrét Pála Ólafsdóttir, Stofnandi og stjórnarformaður Hjallastefnunnar Nám fullorðinna Uni Þór Einarsson, vélvirki Umræður Þórir Erlingsson, aðjúnkt við Háskólann á Hólum, stýrir málstofunni.