Fagþing hita-, vatns- og fráveitna 2018 Fagþing hita-, vatns- og fráveitna verður haldið í Hveragerði dagana 23. – 25. maí 2018. Þingið verður haldið á Hótel Örk, þar sem aðstaða er öll til fyrirmyndar. Heimasíða Fagþingsins 2018 hefur verið opnuð og má þar nálgast allar upplýsingar. Dagskráin er virkilega áhugaverð í ár og boðið upp á yfir 80 erindi um helstu viðfangsefni veitna í dag og til framtíðar. Má þar nefna: Málstofur um framkvæmdir á næstu árum hjá fráveitunum; mengun í neysluvatni; tæknilausnir fyrir hitaveitur; hönnun og rekstur fráveitukerfa; hvernig lítur framtíðin út fyrir hitaveiturnar? Nýtingu og verndun vatnsauðlindarinnar og fleira. Umræður og hópavinna í vinnustofum um stór og áhugaverð málefni, t.d fjölnýtingu jarðhita, öryggi og heilnæmi neysluvatnsins, kolefnishlutleysi veitna, fjölmiðla og veiturekstur & möguleika á að draga úr rennsli í fráveitulögnum. Þá verður boðið upp á ýmsar nýjungar í ár, svo sem vöru- og þjónustusýningu, framkvæmda- og tæknidag, sýnikennslur og keppnir á milli veitufyrirtækjanna. Skemmtidagskrá fyrir maka/gesti (þar sem farið verður í létta hveragöngu og í bjórsmakk á Ölverk), vísindaferð, hátíðarkvöldverður og skemmtun verður á sínum stað. Hótel Örk hefur nýlega verið gert upp og er allt hið glæsilegasta. Tekin verða í notkun 100 ný herbergi rétt áður en fagþingið fer fram, svo Samorkufélagar fá að vera fyrstir til að sofa í nýju rúmunum! Hótelið hefur verið tekið frá fyrir Samorku, en fundargestir sjá sjálfir um að panta gistingu. Gisting er með morgunverði pr. nótt. Öll aðstaða hótelsins er innifalin fyrir gesti: Sundlaug, gufubað, heitir pottar, setustofa með poolborði og borðtennisborði, þráðlaust net. Einbýli: 13.500 kr. Tvíbýli: 16.300 kr. Superior: 22.900 kr. Hægt er að skrá sig á fagþingið hér fyrir neðan. 23. maí verður sérstakur framkvæmda- og tæknidagur á Fagþinginu. Sá dagur er sérstaklega ætlaður því starfsfólki aðildarfélaga Samorku í framkvæmda- og tæknihlið verkefna, auk þess sem vöru- og þjónustusýningu, sýnikennslum og keppnum verður gert sérstaklega hátt undir höfði þennan dag. Þeir sem hyggjast skrá sig á þingið, en eru utan Samorku, skrá sig því eingöngu á Fagþingið 24. og 25. maí. Nafn Fyrirtæki Netfang (required) Vinsamlegast hakið í það sem við á: Ég mæti á Fagþing 2018 24.-25. maí - 39.500 kr. Ég mæti á Framkvæmda- og tæknidaginn 23. maí (ætlað starfsfólki veitu- og orkufyrirtækja) – 9.900 kr. (innifalið í þátttökugjaldi Fagþings) Ég mæti á hátíðarkvöldverð 24. maí – 17.900 kr. Hátíðarkvöldverður fyrir maka/gest – 17.900 kr. Skemmtiferð maka/gests 24. maí – 9.900 kr. Nafn gests: Δ