Opinn ársfundur Samorku 2026 17. mars klukkan 13:00 -15:00 Borgarleikhúsinu, stóra sviðinu Uppbygging á óvissutímum – Eflum áfallaþol ómissandi innviða Á tímum aukinnar alþjóðlegrar óvissu og hraðra breytinga í öryggisumhverfi Evrópu er brýnt að huga að því hvernig við byggjum upp og styrkjum ómissandi innviði samfélagsins. Á ársfundinum verður fjallað um hvernig íslenskt samfélag getur eflt áfallaþol sitt með markvissri stefnumótun, öflugri samvinnu og framsækinni uppbyggingu í breyttri heimsmynd. Áhersla verður lögð á öryggi og viðnámsþrótt orku- og veituinnviða, samspil stjórnvalda og atvinnulífs í uppbyggingu þeirra og alþjóðlega þróun í öryggis- og varnarmálum tengdum þeim ómissandi innviðum. Fram koma: Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Charlie Edwards, sérfræðingur í stefnumótun og öryggismálum Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku Hanna Björg Konráðsdóttir, skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins Hildigunnur Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands Sólrún Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Samorku og forstjóri Veitna Fundurinn hefst kl. 13.00 og stendur til 15.00. Gert verður kaffihlé um miðbik fundarins. Að fundi loknum verður svo boðið upp á léttar veitingar og lifandi tónlist. Fundurinn er opinn öllum og þátttaka er ókeypis. Skráningar er óskað svo hægt sé að áætla veitingar. Nafn Netfang Fyrirtæki Ég vil gerast áskrifandi að fréttabréfi Samorku á netfangið mitt Skrá mig Δ